Nautaskrá
Árgangur 2008
Óreynt naut
Skúmur - 08011 (IS1537711-0216)
Staða: Í notkun
Fæddur: 13/03/2008
Ræktandi: Atli Sigurðsson
Fæðingarbú : Ingjaldsstaðir, Þingeyjarsveit
- F.
- Náttfari 00035
- Fm.
- Smella 0169 Syðri-Bægisá
- Ff.
- Smellur 92028
- M.
- Blika 0137
- Mm.
- Kolla 0110
- Mf.
- Hersir 97033
- Mfm.
- Rifa 0256 Birtingaholti 4
- Mff.
- Þyrnir 89001
- Mmm.
- Gýpa 0068
- Mmf.
- Holti 88017
Svarthuppóttur, sokkóttur m. lauf í enni, kollóttur. Yfirlína bein, í meðallagi sterk. Boldýpt góð, útlögur í meðallagi. Malir í meðalagi breiðar, beinar, lítið eitt þaklaga. Fótstaða fremur gleið, sterk. Þroskamikill gripur. Skúmur var tveggja mánaða gamall 73 kg að þyngd og ársgamall var hann 331 kg, þungaaukning á Uppeldisstöðinni til þessa 846 g/dag að jafnaði.
Móðir: Blika 0137 fædd 31/03/2000
| Mjólk | Fita % | Prótein % | Heild | Frumutala |
|---|---|---|---|---|
| 115 | 95 | 109 | 118 | 111 |
Útlitsdómur:
| Stig | Júgur | Spenar | Mjaltir | Skap |
|---|---|---|---|---|
| 86 | 17 | 18 | 18 | 5 |
Umsögn: Í árslok 2008 var Blika 137 búin að mjólka í 6,4 ár, að jafnaði 6.992 kg af mjólk á ári. Próteinhlutfall 3,54% sem gefur 248 kg af mjólkurpróteini og fituprósenta 4,13% sem gefur 290 kg af mjólkurfitu, eða 538 kg af verðefnum á ári að jafnaði.
kort